Þú ert gestur númer  

Gestabók

Okkur þykjir vænt um ef þið skrifið í gestabókina og segið ykkar álit á efni síðunnar.

























     
Grín og gaman. Höfundur: Jóna Rúna
Mér er ofaukið

Mér er svo innilega ofaukið hér í Hrafnanesinu.
Það er á tæru að ég flyt að heiman fljótlega. Baddi bróðir er svo rosalega frekjulega búinn að leggja allt svæðið undir sig og nýju bleikjuna sína. Við skulum bara gera okkur alvarlega grein fyrir því, að það er ekkert hollt fyrir fjórtán ára saklausan ungling að verða vitni af þessu dónalega ástarflóði sem hér þrífst svo skammarlega þessa stundina. Eins og maður viti ekki svo greinilega hvað þetta lið er að gera á bak við hurð allan liðlangan daginn.

Það er sko ekkert verið að fela.
Við skulum bara athuga það að ef ég kíki svona sæmilega snöggt af og til á skráargatið er fyrir neðan allar hellur það sem sést. Ég get svo svarið það að lopapeysan hans Badda sést svo greinilega koma og fara í skráagatinu, þó þetta lið segðist vera að spila lúdó þegar ég rétt dett kannski með annað augað af og til á gatið.

Það er engin takmörk fyrir því
hvað þetta kynóða lið bíður manni uppá. Pabbi er alveg viss um að ef Baddi er ekki settur í meiriháttar straff verið Hrafnanesið eins og barnaheimimili lok ársins. Mamma er svo rosalega hrifin af Badda og ég fæ ekki séns á neinu dekri þegar þessi padda er heima.

Ég greip bara í ,,kerfi" til minna ráða
og sprengdi allt með því að koma þessu liði í algjört kast, þegar ég seldi nokkrum vinum aðgang af skráargatinu einn laugardaginn. Ég meina mig vantaði fimm þúsund kall í hvelli. Pabbi og mamma náðu einum gaurnum þegar hann í stressi gargaði ,,Vá hvað er að ske er njólinn alltaf svona rosalega upptekinn". Pabbi reif svo svakalega í hnakkadrambið á gaurnum að við megum bara þakka fyrir ef hann verður ekki kærður fyrir að beita ungling í kurteisisheimsón ofbeldi af verstu tegund.

Við skulum bara athuga það
að Baddi gat svo innilega sleppt þessu stælum við bleikjuna og þá hefðum við aldrei þurft að hafa eftirlit með honum þarna í gegnum skráargatið. Þetta var eins og sást svo greinilega nauðsynlegt eftirlit, enda má segja að ég sé búin að vinna fyrir toppnum sem mig vantaði fyrir árshátíðina í skólanum. Það vantar bara hundrað kall uppá. Ég má engann fá heim á næstunni og mamma er búin að hugga Badda svo ósmekklega að maður fær velgju af þessu ofdekraða liði með það sama.

Við skulum líka athuga það
að þegar Jóu vinkonu vantaði tíu þúsund kall um daginn gekk allt upp í einum grænum. Pabbi hennar er með baðbrjálæði og enginn fær að komast að kerinu þetta heilu og hálfu dagana. Ég bara ráðlagði Jóu að kaupa sér freyðibað og leigja bekknum baðið um tíma.

Nú þegar tuttugu og fimm stykki voru búin að fara í bað
og allir hinir að lágu á skráargatinu á meðan varð gamli hlunkurinn svo trylltur að hann hefur þverneitað að nota karið síðan af ótta við líkþorn og vörtur. Jóa fékk því ekki bara peninginn, heldur getur hún í fyrsta skipti farið þetta tvisvar þrisvar á dag í bað.

Vonandi verð ég
uppgötvuð fljótlega.

Skrifað af: Jónu Rúnu Kvaran


Póstur til Jónu Rúnu

..