Þessi síða er tileinkuð
verkum Jónu Rúnu Kvaran *
Valin ljóð
eftir Jónu Rúnu smellið hér
Jóna Rúna er sjáandi, blaðamaður og
rithöfundar o.m.fl.
Hún er fædd 13. 12. 1952 í Reykjavík, þar sem hún býr og starfar.
Jóna Rúna er fjölhæfur einstaklingur
og meðal annars löngu kunn fyrir óvenjulegar dulargáfur sínar, t.d.
skyggnilýsingarfundi , óhefðbundið hjálparstarf, o.m.fl.
Hún var um árabil kennari í Íslensku, bundnu og óbundnu
máli, einnig kenndi hún leiklist, skrifaði leikrit og lék í
leikritum, auk þess að halda marga fyrirlestra. Jóna Rúna er
orðasmiður og það er til marks um orðsnilli hennar að Íslenska
málstöðin vildi láta Menntamálaráðuneitið styrkja hana til útgáfu á
nýjum orðum sem mikil þörf var orðin á. Því miður sá Jóna Rúna sér
ekki fært vegna anna að verða við þeirri bón.
Útvarpsþátturinn á Aðalstöðinni sem Jóna Rúna sá um á árum
áður var mjög uppbyggilegur og vinsæll. Þar komu margir þjóðkunnir
Íslendingar í spjall. Margir muna líka eftir námskeiðunum sem hún
hélt, þar sem einungis frumsamið efni var notað, Þessi námskeið
fjölluðu um að rækta sinn innri jafnt sem ytri mann.
Jóna Rúna hefur flutt fjölda erinda og skrifað mikið magn
af jákvæðum hugleiðingum í gegnum árin, sem byggja á
kærleikshvetjandi lífssýn, eins og sjá má sýnishorn af á vefsíðu
hennar.
Tónlistarhæfileikar, tónvísi og færni hennar á hin ýmsu
hljóðfæri er einstök. Eins og sjá má á vefsíðunni er Jóna Rúna líka
mikill myndlistar-gúró, en 1984 hélt hún málverkasýningu í
Eden/Hveragerði, þar sem öll verkin seldust upp,
Jóna Rúna hefur gefið samþykki fyrir því að eitthvað af
þessum hug og handverkum hennar verði birt á þessari heimasíðu ef
það má verða til þess að auka trú fólks á gildi góðleikans í
samskiptum.